Breski grínistinn Richard Ayoade, kannski betur þekktur sem Moss í IT Crowd, heimsótti Ísland í vetur til að taka upp þátt í þáttaröðinni Travel Man: 48 hours in... en þar heimsækir hann topp ferðamannaáfangastaði og reynir að upplifa sem allra mest á 48 tímum. Hann gaf Íslandi góða einkunn en með honum í för að þessu sinni var breska leikkonan Jessica Hynes sem sagði að Bláa Lónið hefði án vafa staðið uppúr sem hápunktur ferðarinnar.
Þátturinn er framleiddur af og sýndur á Channel 4 í Bretlandi en hann má einnig sjá í heild sinni hér að neðan: