Stjörnuhópur útskrifađur frá leikskólanum Króki

  • Fréttir
  • 21. maí 2015

Elstu nemendur á Króki, árgangur 2009, voru útskrifaðir frá leikskólanum í gær við hátíðlega athöfn. Hulda Jóhannsdóttir leikskólastjóri hélt hvatningarræðu fyrir börnin. Hún beindi því til barnanna að halda uppi þeim hefðum sem þau hafa lært af veru sinni í leikskólanum og vera hjálpfús. Krakkarnir fengu síðan afhenda birkiplöntu til að gróðursetja og myndaræna ljóðabók sem þau útbjuggu sjálf. Við óskum krökkunum til hamingju með þennan áfanga en það mun vafalaust verða vel tekið á móti þeim í Hópsskóla í haust.

Grindavík.net var á svæðinu og tók þessar myndir ásamt fleirum sem sjá má á síðunni þeirra.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!