Í Grindavík er þörf fyrir fleiri dagforeldra í heimahúsum til að gæta yngstu barnanna. Er það eitthvað fyrir þig? Til að gerast dagforeldri þarft þú að geta veitt börnunum góða umönnun, öryggi og hlýju ásamt því sækja námskeið fyrir dagforeldra.
Frekari upplýsingar um störf dagforeldra og skilyrði fyrir leyfisveitingum veitir Ragnhildur Birna Hauksdóttir leikskólaráðgjafi, Víkurbraut 62. Netfang: ragnhildur@grindavik.is .