Ýmislegt skemmtilegt var gert í handmenntastofunni í morgun. Bolir voru litaðir með Tie-dye litum, perlufestar í allskyns útfærslum litu dagsins ljós og slaufur voru saumaðar. Ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með hvað nemendur voru áhugasamir og hugmyndaríkir. Afrakstur dagsins má sjá hér á meðfylgjandi myndum.