Alltaf gaman þegar skólastarfið er brotið upp með ferðalögum og þemadögum. Kl. 8 í morgun voru nemendur í 10. bekk mætt með allt sitt hafurtask eða næstum því, anddyrið var fullt af svefnpokum, dýnum og ferðatöskum. Framundan var skólaferðalag til Vestmannaeyja. Talsverð óvissa var þó hvort hægt yrði að sigla frá Landeyjarhöfn vegna ölduhæðarinnar og þegar þetta er skrifað kl. hálf tvö eru þau ennþá að bíða fyrir austan eftir að vita frá hvorri höfninni verði siglt.
Þemavinnan hjá 7.-9. bekk tókst mjög vel í morgun og voru nemendur og kennarar mjög ánægð með daginn. Hér meðfylgjandi eru myndir frá Eurovision hópnum, hópum í stuttmyndagerð og svo 10. bekkjunum með hafurtaskið sitt.