Eimskip og Kiwanisklúbburinn Hof gáfu í síðustu viku 1. bekkingum reiðhjólahjálma, luktir á hjól og buff. Fulltrúar þeirra ásamt lögregluþjóni komu í skólann og ræddu við börnin um mikilvægi þess að nota hjálma og annan hlífðarbúnað þegar þau eru á reiðhjólum, línuskautum og hlaupahjólum. Einnig var farið yfir mikilvægi þess að setja hjálminn rétt á sig og nota hann einungis þegar verið er að hjóla. Börnin voru að vonum mjög ánægð með þessa góðu gjöf sem á eflaust eftir að koma sér vel. Þakka ber fyrir þessa umhyggjusemi.