Minja- og sögufélag Grindavíkur eignaðist á dögunum að fullu hinu fornu verbúð Bakka, en Bakki er elsta uppistandandi verbúð á Suðurnesjum. Félagið hyggst nú í kjölfarið taka til við að gera húsið upp og færa til vegs og virðingar að nýju. Vonir standa til að í framtíðinni muni það hýsa byggðasafn okkar Grindvíkinga og aðra menningartengda starfsemi.
Þeir sem vilja taka þátt í starfi Minja- og sögufélagsins geta fundið félagið á Facebook og kíkt á opna fundi í Kvennó sem eru flest miðvikudagskvöld kl. 20:00.
Örn Sigurðsson smellti af þessum myndum þegar skrifað var undir söluna í Bakka.