Í þáttunum Ferðastiklum á RÚV ferðast Lára Ómarsdóttir ásamt föður sínum Ómari Ragnarssyni um landið. Þau hitta skemmtilegt fólk, skoða náttúruperlur í alfaraleið og segja áhugaverðar sögur af fólki og fyrirbærum. Í þættinum sem sýndur var 11. maí síðastliðinn var Reykjanesið til umfjöllunar.
Eins og Grindvíkingar vita er Reykjanesið mikil útivistarparadís og náttúran falleg og mikið sjónarspil. Lára vekur þó athygli á því í þættinum að flestir sem ferðast um Reykjanesið eru útlendingar. Það er kannski kominn tími til að breyta því?
Þáttinn má sjá í heild sinni hér að neðan.