Línubáturinn Gottlieb GK, sem strandaði við Hópsnes í fyrradag, var í dag hífður úr fjörunni og upp á vörubílspall. Tvær stórvirkar gröfur voru keyrðar í gegnum úfið og illvígt hraunið og tókst þannig að bjarga því sem eftir er af bátnum úr flæðamálinu.
Ekki þótti óhætt að reyna að draga bátinn á flot á ný af strandstað þar sem botn hans var mjög laskaður. Margir áttu sennilega von á því að sjórinn myndi hreinlega brjóta bátinn í spón í stórgrýttri fjörunni en fyrir einhverja ótrúlega guðslukku komst hann heill í gegnum nokkur flóð og hefur nú verið bjargað í öruggt skjól.
Meðfylgjandi myndir tók hinn mikli meistari Arnar Már Ólafsson og kunnum við honum bestu þakkir fyrir myndefnið.