Frystitogarinn Hrafn GK 111, sem undanfarna mánuði hefur legið við bryggju hér í Grindavík og beðið örlaga sinna hefur fengið nýja eigendur og nýtt nafn í Rússlandi. Togarinn lauk störfum sínum fyrir Þorbjörn eftir að togarinn Hrafn Sveinbjarnarson kom úr stækkun frá Póllandi og í kjölfarið voru gerðar umtalsverðar breytingar á togaraútgerð Þorbjarnar.
Nýir eigendur hafa tekið við skipinu eftir reynslusiglingu á mánudaginn og mun Hrafn sigla áleiðis til Vladivostok 21. maí næstkomandi. Hrafn GK hefur fengið nafnið F/T NERA. Siglingin er um 12.000 sjómílur og mun væntanlega taka um 50 daga. Leiðin liggur suður fyrir og um Gíbraltarsund inn í Miðjarðarhafið. Farið verður um Suez skurðinn og framhjá sjóræningjaslóðum í Adenflóa.
Á skjáskotinu af Marine Traffic má sjá siglingarleið Hrafns til Vladivostok.
Mynd af Hrafni GK: Bergþór Gunnlaugsson