Á síðasta vetrarfundi Kvenfélags Grindavíkur, sem haldinn var í nýrri aðstöðu félagsins í íþróttamiðstöðinni, afhenti félagið íþróttamiðstöðinni tvo sturtustóla að gjöf. Stólarnir eiga vafalaust eftir að nýtast mörgum gestum sundlaugarinnar og íþróttamannvirkjanna vel en þeir eru þegar komnir í notkun.