Mannbjörg varđ er Gottlieb GK 39 varđ vélarvana viđ Hópsnes

  • Fréttir
  • 13. maí 2015

Mikill viðbúnaður var hjá björgunarsveitinni Þorbirni uppúr hádegi í dag en kl. 12:32 barst neyðarkall frá bátnum Gottlieb GK 39 sem varð vélarvana við Hópsnesvita. Fjórir skipverjar voru um borð og rak bátinn hratt upp í grýtta fjöruna. Skipverjar komust allir í flotgalla og komust af sjálfsdáðum frá borði. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom skömmu seinna á staðinn og ferjaði mennina til Grindavíkur.

Frétt Landhelgisgæslunnar:

„Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst nú kl. 12:23 neyðarkall frá bátnum Gottlieb 2622 sem var vélarvana við Hópsnes á Reykjanesi. Rak bátinn hratt að landi. Fjórir skipverjar voru um borð. Þegar í stað var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út sem og björgunarsveitir á Suðurnesjum og björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Þá var samhæfingarstöðin einnig virkjuð.

Skömmu eftir að útkallið barst var báturinn kominn upp í kletta og lagðist þar á hliðina. Nærstaddir bátar á svæðinu komust ekki að til aðstoðar. Strekkingsvindur var á svæðinu, SA 10-12 m og aðstæður á staðnum erfiðar.

Skipverjar, sem voru allir í björgunargöllum náðu að koma taug í land og kl. 12:51 barst staðfesting um að þeir væru allir komnir upp í fjöru heilir á húfi.

Um hálftíma eftir að útkallið barst lenti þyrla Landhelgisgæslunnar í fjörukambinum og mun hún flytja skipverjana til Grindavíkur.“

Mynd: Halli Bangsa


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!