Í morgun fór Litla upplestrarkeppnin fram á sal Grunnskólans við Ásabraut. Nemendur 4. bekkjar taka þátt í Litlu upplestrarkeppninni en hún er undirbúningur fyrir Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin er reglulega í 7. bekk. Meginmarkmið keppninnar er að nemendur flytji íslenskt mál sjálfum sér og öðrum til ánægju og að þeir hafi vandvirkni og virðingu að leiðarljósi við flutninginn. Keppnishugtakið felur eingöngu í sér það markmið að keppa við sjálfan sig, að verða betri í dag enn í gær.
Smellið á MEIRA
Í byrjun hátíðarinnar spilaði Helgi Guðmundsson í 4. JR á þverflautu og Ólafía Hrönn Mikaelsdóttir í 7.U kom og las tvær sögur fyrir börnin en hún lenti í öðru sæti í Stóru upplestrarkeppninni sem haldin var í Stóru-Vogaskóla fyrr í vetur
Foreldrar barnanna komu hlustuðu á þau flytja ljóð og sögur og börnin sem lögðu sig öll fram fannst mikið til þess koma að lesa fyrir framan hóp af fólki og sýna færni sína í upplestri. Nemendur höfðu æft af kappi fyrir þessa keppni og stóðu allir sig með glæsibrag.
Að lokum fengu allir nemendur viðurkenningu frá Guðbjörgu aðstoðarskólastjóra fyrir þátttöku í keppninni.