Lokið við framkvæmdir á Norðurgarði á árinu
Samgönguráðherra hefur samþykkt að lokið verði við framkvæmdir á Norðurgarði,
hafnarkantinum fyrir framan útgerðarfyrirtækið Vísi hf., á þessu ári en málið
var í nokkurri óvissu um tíma vegna efnahagsástandsins. Þetta staðfesti samgönguráðherra
á fundi með forsvarsmönnum bæjarins á dögunum.
Þetta eru miklar gleðifréttir fyrir Grindvíkinga enda verður fullkláruður Norðurgarður
mikil lyftistöng fyrir Grindavíkurhöfn og gjörbyltir allri aðstöðu við höfnina,
að sögn Sverris Vilbergssonar, hafnarstjóra. Þetta kemur fram í Járngerði sem
kemur út í dag.
Bryggjukanturinn er klár en á þessu ári verður lokið við að steypa þekjuna og
ganga frá rafmagni, vatni o.fl. en ríkisvaldið stendur straum af þessum kostnaði.
Siglingamálastofnun tekur þátt í kostnaði á nýju vigtarhúsi sem rís á bryggjunni
á Norðurgarði en húsið mun einnig gjör bylta allri aðstöðu.
Á myndinni má sjá teikningu af fyrirhuguðu vigtarhúsi á Norðurgarðinum.