Hin árlega Mörtuganga var farin í skólanum í dag miðvikudaginn 29. apríl. Allir nemendur skólans fara í gönguferð þennan dag til minningar um Mörtu Guðmundu Guðmundsdóttur kennara sem hefði orðið 45 ára í dag en hún lést úr krabbameini í nóvember 2007 aðeins 37 ára gömul.
Marta var Grindvíkingur, dóttir Guðmundar Finnssonar og Höllu Ágústsdóttur. Hún lét eftir sig eina dóttur, Andreu Björt Ólafsdóttur. Marta hafði kennt við skólann í nokkur ár er hún greindist með krabbamein. Hún var íþróttakona og mikill göngugarpur og fór meðal annars í ofurgöngu yfir Grænlandsjökul eftir að hún greindist veik af krabbameini. Minningu Mörtu viljum við halda á lofti og er þessi árlega gönguferð skólans hluti af því.