Bryndís Gunnlaugsdóttir, oddviti Framsóknar í Grindavík, óskaði á fundi bæjarstjórnar í gær eftir leyfi frá störfum bæjarfulltrúa frá og með 1. júní 2015 til 31. maí 2016. Ástæða þessarar óskar eru veikindi Bryndísar en hún hefur undanfarin ár glímt við vefjagigt og freistar þess nú að minnka álag og að ná heilsu á ný. Bókun Bryndís var samþykkt samhljóða og má lesa í heild sinni hér að neðan.
Bókun:
„Forseti bæjarstjórnar, bæjarfulltrúar og Grindvíkingar allir.
Haustið 2013 greindist ég með vefjagigt en þá hafði ég verið veik frá því snemma árið 2009 án þess að vita hvað væri að. Síðustu tvö ár hef ég markvisst unnið að því að ná að samtvinna vinnu, bæjarstjórn og einkalíf ásamt því að hafa tíma til að hlúa að heilsunni. Lykilatriði fyrir þá sem glíma við vefjagigt er jafnvægi, nægur svefn og hóflegt álag, bæði líkamlegt og andlegt. Því miður hefur mér ekki tekist að finna þetta jafnvægi verandi í krefjandi starfi í Reykjavík sem lögfræðingur, oddviti Framsóknar í Grindavík ásamt því að geta sinnt einkalífi og heilsunni. Er því komin sá tími er ég verð að láta líkamlega heilsu í fyrsta sæti og óska ég því eftir leyfi frá störfum bæjarfulltrúa frá 1. júní 2015 til 31. maí 2016 þar sem ég mun flytja úr sveitarfélaginu um stundarsakir til að geta einbeitt mér betur að því að ná heilsu.“
Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm
Við óskum Bryndís góðs bata og vonum að hún nái sér vel og hratt af veikindum sínum og snúi tvíelfd til baka. Varamaður Bryndísar er þingmaðurinn Páll Jóhann Pálsson sem væntanlega mun taka sæti hennar í bæjarstjórn og Ásrún Kristinsdóttir taka sæti Bryndísar í bæjarráði.