Viltu kynnast jafnöldrum þínum á Norðurlöndunum, taka þátt í skemmtilegu sumarnámskeiði og prófa eitthvað nýtt? Norræna félagið í Grindavík, í samstarfi við Grindavíkurbæ, vinabæinn Piteå í Svíþjóð og Norðurlandaráð, býður upp á námskeið í sænsku sem sérstaklega er ætlað fyrir vinabæi Piteå. Námskeiðið fer fram dagana 27. júlí til 5. ágúst n.k. Innifalið er flug, gisting, matur og námskeiðið sjálft.
Í boði eru tvö sæti á námskeiðinu fyrir ungmenni í Grindavík fædd á árunum 1995 til 2000. Þeir sem ekki eru orðnir 18 ára þurfa skriflegt leyfi frá forráðamönnum. Innifalið í boðinu er flug, gisting og námskeiðið sjálft. Æskilegt er að umsækjandi hafi bakgrunn og/eða góðan námsárangur í einhverju af Norrænu tungumálunum.
Þeir sem hafa áhuga að sækja námskeiðið eru beðnir að senda tölvupóst með eftirfarandi upplýsingum á netfangið frida@grindavik.is:
• Nafn, heimilisfang
• Góður rökstuðningur hvers vegna þú viltu fara á námskeiðið og hvernig það nýtist þér?
• Hvernig metur þú kunnáttu þína í Norrænum tungumálum?
• Það styrkir umsóknina að senda með einkunnir úr grunnskóla og/eða framhaldsskóla í Norrænu tungumáli.
Umsóknarfrestur er til 12. maí nk. Alþjóðafulltrúi Piteå, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar og stjórn Norræna félagsins í Grindavík, sjá um umsóknarferlið.
Norræna félagið í Grindavík