Málefni ungs fólks voru á dagskrá bæjarstjórnar Grindavíkur í gær. Fulltrúar Ungmennaráðs mættu á bæjarstjórnarfundinn og kynntu þau verkefni sem þau eru að vinna og komu jafnframt með áskorun til bæjarstjórnar.
Lárus Guðmundsson formaður Ungmennaráðs sagði frá Ungmennagarði sem verður settur austast á lóð Grunnskóla Grindavíkur. Ráðist verður framkvæmdir á honum í sumar en garðurinn verður byggður upp á næstu þremur árum. Þar verður að finna ýmis afþreytingartæki fyrir ungmenni.
Þá kynnti Nökkvi Harðarson Grindavíkurappið sem verður tilbúið að á næstunni. Appið stórbætir aðgengi að fréttum á heimasíðu bæjarins grindavik.is fyrir farsíma og snjalltæki, viðburðardagatal af grindavik.is verður aðgengilegt. Viðburðir Þrumunnar, íþróttadagskrá /leikir koma sjálfvirkt inn frá kki.is og ksi.is og hægt verður að skrá sig fyrir áminningum í appinu og kemur þá tilkynningu í símann þegar viðburður er að fara byrja.
Í appinu verður einnig hægt að nálgast æfingatöflur UMFG, opnunartíma ýmissa stofnana, upplýsingar frá visitgrindavik.is og ýmislegt fleira.
Appið er fyrst og fremst hannað þannig að auðvelt er að bæta og breyta því með hugmyndum Ungmennaráðs og fleiri og mun það uppfærast reglulega.
Að endingu flutti Katrín Lóa Sigurðardóttir áskorun til bæjarstjórnar. Ávarp hennar var eftirfarandi:
,,Forseti bæjarstjórnar, bæjarstjórn, bæjarstjóri, góðir gestir
Núverandi ungmennaráð var sett á laggirnar 3. mars í fyrra. Síðan þá hefur ráðið haldið 10 bókaða fundi og eru fundargerðirnar birtar á heimasíðu Grindavíkurbæjar.Við erum afar þakklát bæjarstjórn hversu vel hún hefur tekið í hugmyndirnar okkar, eins og fram hefur komið erum við að vinna að spennandi verkefnum. Það er lærdómsríkt fyrir okkur að kynnast því hvernig lýðræðið virkar og fá að taka þátt í hugmyndavinnu, forgangsröðun og að hrinda verkefnum í framkvæmd.
Ungmennaráð vill nota tækifærið og skora á bæjarstjórn að skoða eftirfarandi:
Að samgöngur milli Grindavíkur og Reykjanesbæjar fyrir nemendur í Fjölbrautaskóla Suðurnesja verði efldar.
Að næsta vetur verði opnir tímar í íþróttahúsi og Hópi fyrir þá sem vilja koma og leika sér.
Að ljósin á körfuboltavellinum við Hópsskóla verði logandi til kl. 22:00 á kvöld, eins og á sparkvellinum við Ásabrautina.
Á skemmtilegum og fróðlegum fundi Æskulýðsvettvagnsins í Grindavík í febrúar með ungu fólki og fulltrúum þeirra sem fjalla um málefni ungs máls í bænum, kom einnig margt forvitnilegt fram. Markmið og tilgangur verkefnisins var að skapa umræðuvettvang fyrir ungmenni þar sem þau gátu látið í sér heyra og komið skoðunum sínum á framfæri við þá sem bera ábyrgð á æskulýðsmálum, menntun, listum og menningu og samfélaginu í heild í þeirra heimabyggð.
Í lokaskýrslu frá verkefnastjóranum Ragnheiði Sigurðardóttir segir meðal annars:
"Að mínu mati tókst fundurinn í Grindavík ákaflega vel. Góður andi var hjá þátttakendum og einkenndust umræður af jákvæðni og lausnum um hvað sé gott og hvernig sé hægt að gera enn betur. Jafnframt var ánægjulegt að heyra að ungmenni hugsuðu málefnin ekki einungis út frá sjálfum sér heldur einnig út frá fötluðum einstaklingum og öldruðum. Það er von mín að stjórnendur í sveitarfélaginu kynni sér hugmyndir ungmennanna sem komu fram og bjóði þeim oftar að borðinu til skrafs og ráðagerðar."
Við skorum á ykkur kæra bæjastjórn að kynna ykkur niðurstöður þessa ungmennaráðsfundar vel.
Takk fyrir okkur."
Ungmennaráð Grindavíkur skipa:
• Lárus Guðmundsson, formaður
• Nökkvi Harðarson
• Elsa Katrín Eiríksdóttir
• Karín Óla Eiríksdóttir
• Nökkvi Nökkvason
• Katrín Lóa Sigurðardóttir
• Ólafur Þór Unnarsson
• Þórveig Hulda Frímannsdóttir