Ágætu foreldrar og allir sem áhuga hafa á skólastarfi í Grindavík. Skólanámskrá Grunnskóla Grindavíkur er komin á heimasíðu skólans sem drög. Efst á valstiku er hægt að velja skólanámskrána og þá opnast inngangskafli. Síðan er hægt að velja almenna hluta skólanámskrár eða námsvísa. Okkur þætti vænt um að fá ábendingar um það sem betur má fara eða fyrirspurnir fyrir 15.maí n.k. Rétt er að taka fram að ákveðið var að vinna með námsmat á næsta skólaári og því er sá hluti skólanámskrár ófrágenginn.
Kveðja
Guðbjörg M. Sveinsdóttir
aðstoðarskólastjóri