Fyrir 65 árum, þann 28. febrúar 1950, varð hörmulegt sjóslys hér úti fyrir ströndum þegar olíuskipið Clam rak vélarvana upp í fjöru og strandaði. Af 50 manna áhöfn fórust 27 en 23 tókst að bjarga. Tveir björgunarbátar voru settir út í óþökk yfirmanna og 31 skipverji freistaði þess að komast í land á þá, flestir þeirra Kínverjar. Bátunum hvolfdi báðum í öldunum og aðeins 4 af þeim 31 sem í bátana fóru komust lifandi í land. Björgunarsveitin Þorbjörn bjargaði síðan þeim 19 skipverjum sem héldu kyrru fyrir í skipinu með því að skjóta línu um borð.
Nánar má lesa um þessa atburði á Ferlir.is. Myndin sem fylgir þessari frétt er eftir Jón Óskar Hauksson. Flickr síða hans er hér.
Nýlega komu í leitirnar upptökur frá þessum hörmulegu atburðum og fjallaði Landinn á Rúv af því tilefni um þá og ræddi við tvo Grindvíkinga sem urðu vitni að þessu öllu saman, þá Kristinn Þórhallsson og Ingólf Júlíusson. Þáttinn má sjá í heild sinni hér aðeins neðar.
Frétt Landans: „Fyrir 65 árum strandaði breska olíuskipið MS Clam við Reykjanes í aftakaveðri. Fimmtíu manns voru í áhöfninni og 27 þeirra fórust, þ.e. flestir þeirra sem reyndu að komast í land á björgunarbátum.
Félagar úr björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík náðu hinsvegar að bjarga 19 manns, við mjög erfiðar aðstæður, með því að skjóta línu um borð í skipið.
Fyrir stuttu fundust kvikmyndir sem Henry Hálfdánarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélags Íslands, tók á strandstað. Landinn fékk þessar myndir í hendur og notaði tæikifærið til að rifja upp þetta hörmulega sjóslys.“