Það komu góðir gestir í heimsókn á bæjarskrifstofurnar í gær þegar nemendur á Starfsbraut FS litu inn. Hópurinn var á ferð um Suðurnesin, nýkomin frá Reykjanesvita og frá okkur lá leiðin í Bláa lónið. Róbert bæjarstjóri tók á móti hópnum, fræddi þau um Grindavík og svaraði spurningum og spjallaði við krakkana um ýmis málefni sem á þeim brunnu.