Nemendur í 9.bekk tóku þátt í DNA ritgerðarsamkeppni sem haldin er bæði á Íslandi og í Evrópu. Síðasta föstudag var verðlaunaafhending í Öskju húsnæði Háskóla Íslands og fengu nemendur úr Grunnskóla Grindavíkur öll verðlaun sem veitt voru. Vigdís Stefánsdóttir erfðaráðgjafi á erfðafræðideild Landspítalans sá um að veita verðlaunin.
Nemendurnir eru þau Áslaug Gyða, Belinda Berg, Viktoría Líf, Sarah, Ósk Dís, Viktor Guðberg og Teitur Leon, hlutu þau fyrir hönd skólans peningaverðlaun. Ritgerðirnar frá þeim voru send út í Evrópu ritgerðasamkeppnina og verða þau verðlaun veitt í lok maí. Þórunn Alda Gylfadóttir náttúrufræðikennari þeirra kynnti verkefnið fyrir þeim og sendi þau í í samkeppnina.
Nemendurnir ásamt kennara sínum fóru í vettvangsferð til Reykjavíkur að þessu tilefni. Farið var í heimsókn á erfðafræðideildina á Landspítalanum þar sem þau fengu að skoða þrjár deildir. Nemendur fengu smá innsýn í það sem fer fram við erfðafræðiskoðun á blóðsýnum við ýmsu sjúkdómum sem gætu hrjáð okkur. Jón Jóhann Jónsson forstjóri erfðafræðideildarinnar tók á móti hópnum og fræddi nemendur um námið og hvað fer fram á vinnustaðnum. Fengu þau að skoða staði sem almenningur fær ekki að fara inn á og hitta fólk sem vinnur við erfðafræði og greiningar.
Við erum mjög stolt af nemendunum og þeirri vinnu sem þau lögðu á sig við að afla upplýsinga og skrifa 750 orða ritgerð um hvernig þau sjá framtíðina fyrir sér í erfðarannsóknum.