Samfylkingin í Grindavík heldur bæjarmálafund í aðstöðu flokksins á Víkurbraut (við hliðina á lögreglustöðinni) kl. 20.00 í kvöld. Efni fundarins er dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar. Eins og alltaf þá er einnig opið fyrir umræður um öll þau mál sem tengjast starfsemi bæjarins og hvetjum við íbúa til þess að kíkja við í kaffi.
Bestu kveðjur,
Stjórn Samfylkingarinnar í Grindavík