Það fór sennilega ekki framhjá Grindvíkingum í gær að lóan er komin. Lóur sáust hér í hópum á hverju götuhorni og raunar voru þær svo margar víða í bænum að það var engu líkara en hér ætti að taka upp endurgerð The Birds eftir Hitchcock. Eyjólfur Vilbergsson náði þessari mynd útum eldhúsgluggann hjá sér. En þrátt fyrir að lóan sé komin er einhver bið eftir sumrinu því að með vindkælingu eru um -12° úti þegar þetta er skrifað. Sumarið hlýtur nú bara að vera handan við hornið!