Danska jazzsöngkonan Katrine Madsen heimsækir Ísland um helgina og ætlar að halda ferna tónleika. Hún heiðrar okkur Grindvíkinga með nærveru sinni í kvöld, föstudag, og heldur tónleika á Bryggjunni sem hefjast klukkan 21:00. Með Katrine leikur hljómsveit, skipuð þeim Eyþóri Gunnarssyni á píanó, Matthías Hemstock á trommur og Richard Andersson á kontrabassa.
Tónleikarnir hefjast eins og áður segir klukkan 21:00 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.