Í morgun var bókmenntakynning fyrir nemendur 3. 4. og 5. bekkja í salnum á Ásabraut. Kristín Ármannsdóttir, dóttir Ármanns Kr. Einarssonar kom og kynnti bækur föður síns og voru nemendur mjög áhugasamir og glaðir með framtakið. Kynningin er í tengslum við hina árlegu spurningarkeppni miðstigs Grunnskóla Grindavíkur en bækur Ármanns Kr. eru meðal þeirra bóka sem lesnar verða fyrir keppnina næsta vetur.
Smellið á MEIRA
Ármann Kr. Einarsson ( 1915 - 1999) var íslenskur rithöfundur sem fékkst við að semja skáldsögur handa börnum og unglingum. Lengst af starfaði hann sem kennari við Hlíðaskóla í Reykjavík.
Fyrsta bók Ármanns, smásagnasafnið Vonir, kom út 1934. Árið 1953 kom út fyrsta bókin af átta um Árna í Hraunkoti og 1962 kom fyrsta bókin um þá félaga Óla og Magga. Ótal fleiri bækur skrifaði Ármann fyrir börn og unglinga og nutu bækur hans mikilla vinsælda. Hann las flestar bækur sínar í útvarp og samdi leikþætti upp úr Árna-bókunum sem fluttir voru í útvarpi. Nokkrar bækur Ármanns hafa verið þýddar á önnur tungumál. Hann hlaut margs konar viðurkenningu fyrir ritstörf sín. Árið 1985 stofnaði Ármann Verðlaunasjóð íslenskra barnabóka ásamt fjölskyldu sinni og bókaútgáfunni Vöku-Helgafelli. Sjálfsævasaga hans, Ævintýri lífs míns, kom út 1997.