Dagana 14. & 15. apríl skunduðu fjórir starfsmenn tónlistarskólans á námsstefnu um vendinám (spegluð kennsla) hjá Keili en eins og fram hefur komið er Tónlistarskólinn í Grindavík frumkvöðull á Íslandi í að nýta sér vendinám í tónlistarkennslu. Skólinn er einnig með þeim fyrstu í heiminum að taka upp vendinám í tónlistarkennslu.
Á námsstefnunni héldu guðfeður vendinámsins þeir Jonathan Bergman og Aaron Sams fyrirlestra og vinnustofur. Einng leiddi einn kennari tónlistarskólans fjórar vinnustofur um vendinám í tónlistarkennslu sem margir nýttu sér. Vert er að geta þess að fjölmargir tónlistarskólar á Íslandi hafa haft samband við Tónlistarskólann í Grindavík og óskað eftir fræðslu varðandi vendinám.
Einnig skellti einn kennari skólans sér á Frankfurt Musikmesse 2015 (stærsta hljóðfæra og tónlistartengda sýning heims) um síðustu helgi og kynnti sér allt það nýjasta varðandi nemendahljóðfæri, forrit sem nýtast til tónlistarnáms, nótnaútgáfu og margt, margt fleira sem kemur skólanum og kennslunni til góða.