Vísir greindi frá því á heimasíðu sinni í gær að fyrirtækið hafi skrifað undir samning við Marel um kaup á tveimur fiskvinnsluvélum sem nefndast FleXicut en Vísir og Marel hafa unnið saman að þróun vélanna undanfarna mánuði. Um er að ræða háþróaðan fiskvinnsluvélar sem stuðla að hámarksnýtingu afurða og færir Vísi skrefi nær sjálfvirknivæðingu í vinnslu afurða.
Fréttin í heild sinni af http://www.visirhf.is/is/um-visi/frettir/visir-kaupir-tvaer-flexicut-velar-fra-marel
„Í dag var skrifað undir samning við Marel um kaup á tveimur FleXicut vélum, en Vísir hefur í samstarfi við Marel verið að þróa vélina síðan í byrjun árs. Fyrsta vélin verður sett upp í maí og sú seinni síðar á árinu. Samkvæmt Pétri Hafsteini Pálssyni, framkvæmdastjóra Vísis, er FleXicut "tímamótalausn sem færir hátæknina beint inn í hjarta fiskvinnslunnar sem hefur áhrif á allt heildarferlið." Ennfremur bendir hann á að þetta sé eitt stærsta skref í átt að sjálfvirknivæðingu sem sést hefur áraraðir. " Með tilkomu FleXicut getum við aukið vöruframboð okkar til muna og tryggjum hámarksnýtingu og gæði í hvert sinn sem er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur," segi Pétur.
Meðfylgjandi mynd var tekin við undirskriftina á bás Vísis á sjávarútvegssýningunni þar sem Sigurður Ólason, framkvæmdastjóri fiskiðnaðarseturs Marel, og Pétur handsöluðu samninginn.“