Útgerðarfyrirtækið Vísir hf fagnar 50 ára afmæli á árinu og af því tilefni hefur fyrirtækið látið útbúa margvíslegt nýtt markaðsefni. Heimasíða fyrirtækisins hefur verið tekin í yfirhalningu og er einkar glæsileg á að líta. Óskum við Vísi og starfsfólki þess til hamingju með nýju síðuna og auðvitað afmælið sem haldið verður uppá með pompi og prakt um sjómannadagshelgina.
Í fréttatilkynningu frá Vísi segir:
„Í tilefni af 50 ára afmæli Vísis á þessu ári höfum við látið útbúa nýtt markaðsefni, vefsíðu og bækling, sem sýnir betur áherslur félagsins. Ákveðið var að beina kastljósinu að starfsfólkinu okkar, enda eins og við segjum í bæklingnum, þá er mannauður fyrirtækisins lykillinn að farsælum rekstri þess.“
Myndin sem fylgir þessari frétt er einmitt af starfsfólki Vísis, fengin af nýju síðunni.