Ertu námsmaður, verður a.m.k. 18 ára á þessu ári og ert í námi, á milli missera eða skólastiga, ert með lögheimili í Grindavík og ekki komin(n) með sumarvinnu? Velferðarráðuneytið og Vinnumálastofnun standa í sumar fyrir átaksverkefni til að fjölga störfum á vegum stofnana ríkisins og sveitarfélaga, fyrir námsmenn í atvinnuleit. Grindavíkurbær er eitt þeirra sveitarfélaga sem tekur þátt í verkefninu og mun bjóða námsmönnum með lögheimili í Grindavík að sækja um sumarstörf.
Alls verður boðið upp á þrjú (3) störf samkvæmt þessu átaksverkefni hjá bænum, við fjölbreytt verkefni, í tvo mánuði (júní og júlí). Til greina koma störf í miðstöð þjónustu við fatlaðra, höfnina, íþróttasvæði, bæjarskrifstofu, leikskóla, bókasafn, vinnuskóla, tjaldsvæði o.fl.
Umsóknareyðublöð um störfin er að finna hér (best að opna í Explorer vafra).
Vinsamlegast fyllið út, tilgreinið einnig áhugasvið hvað varðar sumarstarf og sendið umsóknina á netfangið thorsteinng@grindavik.is, eða skilið í afgreiðslu á bæjarskrifstofunum.
Áríðandi! Umsókninni þarf að fylgja skrifleg staðfesting frá þeim skóla sem umsækjandi mun stunda nám sitt í næsta skólaár.
Umsóknarfrestur er til 7. maí. n.k.