Í dag miðvikudag kl. 12:00 verður undirbúningsfundur þjónustuaðila og fulltrúa litahverfanna í Grindavík vegna Sjóarans síkáta. Fundurinn fer fram á bæjarskrifstofunum að Víkurbraut 62. Allir þeir sem eru í þjónustustarfsemi í Grindavík eru hvattir til að mæta. Lögregla og fulltrúar björgunarsveitarinnar Þorbjarnar verða einnig á fundinum.