Skipulagsnefnd fól sviðsstjóra á síðasta fundi sínum að nefna fyrstu götu innan reits nr. 1 í rammaskipulagi iðnaðarsvæðis i5, Hraunsvík. Þá lagði nefndin einnig til að aðrar götur innan iðnaðarsvæðis i5 muni heita eftir víkum í strandlengju Grindavíkur. Gata meðfram affallslögn frá Svartsengi skal heita Víkurgata. Næstu götur skulu heita Krossavík, Sandvík, Mölvík, Katrínarvík og Hvalvík.
Myndin sem fylgir þessari frétt er af steinboga í Mölvík og er eftir ljósmyndarann Harald Hjálmarsson, flickr vefsíða hans er hér.