Uppbyggingarsjóđur Suđurnesja - Umsóknarfrestur til 30. apríl

  • Fréttir
  • 21. apríl 2015

Breytingar hafa verið gerðar á styrkjakerfi Menningarráðs Suðurnesja og Vaxtarsamnings Suðurnesja en báðir sjóðirnir hafa verið sameinaðir í einn undir nafninu Uppbyggingarsjóður Suðurnesja. 

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa gert með sér samning um Sóknaráætlun Suðurnesja sem gildir frá árinu 2015 til 2019.

Markmið samningsins er að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni landshlutans. Markmiðið er jafnframt að einfalda samskipti ríkis og sveitarfélaga og tryggja gagnsæi við úthlutun og umsýslu opinberra fjármuna.

Með samningi þessum verða gerðar breytingar á fyrirkomulagi styrkveitinga. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur veitt styrki til menningarmála í gegnum Menningarsamning Suðurnesja og til þróunar- og nýsköpunarverkefna í gegnum Vaxtarsamning Suðurnesja.

Báðir þessir sjóðir eru nú sameinaðir í einn styrktarsjóð sem nú heitir Uppbyggingarsjóður Suðurnesja.
Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og hlutverk hans er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni, auk annarra verkefna sem falla að sóknaráætlun landshlutans. Sjóðurinn styrkir að jafnaði ekki meira en 50% af heildarkostnaði verkefna.

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja mun auglýsa eftir styrkhæfum verkefnum þann 16. apríl nk. og verður umsóknarfrestur til 30. apríl 2015.

Umsóknareyðublöð ásamt öðrum gögnum sem umsækjendur þurfa á að halda við ritum umsóknar eru aðgengileg á vef sambandsins www.sss.is næstu daga.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!