Grindvískir eldri borgarar heimsóttu Reykjanesbæ í gær þar sem tekist var á á vinabæjarmóti í ballskák. Tíu Grindvíkingar mættu galvaskir til leiks en alls tók 31 spilari þátt í mótinu. Það fór þannig að lokum að nágrannar okkar úr Reykjanesbæ fóru með sigur af hólmi. Þórður Kristjànsson sigraði Svein Jakobsson í úrslitaleik og Ólafur Bogason sigraði Marinó Haraldsson í leik um þriðja sætið. Það er því ljóst að Grindvíkingar verða að herða sig í æfingum!
Mynd: Vf.is