Krakkarnir á leikskólunum Krók og Laut fengu glæsilegar gjafir síðastliðinn föstudag en þá komu nemendur úr Smíðasmiðju FS færandi hendi með fjölmörg leiktæki bæði úr málmi og tré. Gjafirnar féllu í afar góðan jarðveg hjá leikskólabörnunum og munu eflaust koma að góðum notum. Meðfylgjandi myndir voru teknar við afhendingu leiktækjanna.
Myndir: Vf.is