Ţrjú tonn af teikningum

  • Fréttir
  • 20. apríl 2015

Framkvæmdir við nýtt 5 stjörnu lúxushótel Bláa lónsins eru nú komnar á fullt skrið en stefnt er að opnun hótelsins vorið 2017. Alls verða 60 herbergi á hótelinu og mannvirki Bláa lónsins tvöfaldast að stærð við þessar framkvæmdir. Nánar má lesa um umfang verkefnisins á vef Víkurfrétta.

Að baki jafn stórri framkvæmd og þessari liggja að sjálfsögðu fjölmargar teikningar en fulltrúi Bláa lónsins skilaði þeim inn á skrifstofu byggingarfulltrúa Grindavíkurbæjar, Sigmars Árnasonar, í dag. Nú bíður hans ærið verkefni að fara yfir allar teikningarnar, skanna þær og skrá til varðveislu hjá Grindavíkurbæ.

Byggingarfulltrúa til varnar er vert að taka fram að teikningarnar á myndinni eru í tvíriti, en heildarmagnið fyrir framkvæmdina er þó meira því teikningar fyrir innréttingar vantar.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun