Umsóknarfrestur í Vinnuskólann (unglingavinnuna) er til og með 21. apríl, þ.e. á morgun. Ekki verður tekið við skráningum eftir það. Vinnuskóli Grindavíkur verður starfandi í sumar fyrir ungmenni fædd 2001, 2000, 1999 og 1998, þ.e. fyrir 8. til 10. bekk og fyrsta árs nemendur í framhaldsskóla.
Skráning í Vinnuskólann að þessu sinni er hjá frístundaleiðbeinanda, Jóhanni Árna Ólafssyni, í Þrumunni í Iðu. Nemendur geta aðeins skráð sig hafi þeir leyfisbréf frá forráðamanni sem þarf að skila inn við skráninguna. Leyfisbréfið er í viðhengi (hægt að prenta út og fylla út, einnig er hægt að nálgast leyfisbréf í Þrumunni). Einnig þarf að gefa upp reikningsupplýsingar fyrir laun.
Nánari upplýsingar um Vinnuskólann 2015 má sjá hér.