Undirbúningur fyrir hátíðarhöld Sjómannadagsins og bæjarhátíðina Sjóarann síkáta ganga vel. Í síðustu viku var haldinn fyrsti sameiginlegi undirbúningsfundur Grindavíkurbæjar, Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, lögreglu, Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar og slysavarnadeildarinnar Þórkötlu ásamt starfsmönnum Grindavíkurbæjar. Dagskráin er óðum farin að taka á sig mynd. Þeir sem vilja koma inn dagskráefni í opinbera dagskrár hátíðarinnar þurfa að gera það eigi síðar en 10. maí nk. á netfangið sjoarinnsikati@grindavik.is
Næstu fundir vegna Sjóarans síkáta eru:
Sjómanna- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur fest sig í sessi sem ein skemmtilegasta og fjölbreyttasta bæjarhátíð landsins haldin um Sjómannadagshelgina, 5.-7. júní 2015, til heiðurs íslenska sjómanninum og fjölskyldu hans. Hátíðin hefur vaxið með hverju árinu, þar er fjölbreytt dagskrá alla helgina en mikið er lagt upp úr vandaðri barnadagskrá. Líkt og undanfarin ár verður bænum skipt upp í fjögur litahverfi.
Skipulagning hátíðarinnar er í umsjá Þorsteins Gunnarssonar, sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs. Netfang thorsteinng@grindavik.is
Hægt er að beina almennum fyrirspurnum í síma 420 1100.
Sjóarinn síkáti: sjoarinnsikati@grindavik.is • www.sjoarinnsikati.is
Umsjón: Grindavíkurbær í samstarfi við Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur.
Hverfaskipting:
Appelsínugula hverfið (bátar) • Liðsstjóri: Jón Berg Reynisson jonbr@centrum.is . Sími 893 6072.
Blá hverfið (krabbar) • Liðsstjóri: Gísli Jóhann Sigurðsson, johannolafsson@simnet.is . Sími 896 8909.
Græna hverfið (skeljar) • Liðsstjóri: Sólveig Ólafsdóttir, sollaola@simnet.is. Sími 698 8115.
Rauða hverfið (fiskar) • Liðsstjóri: Margrét Erla Þorláksdóttir, margret1010@gmail.com . Sími 698 6390.
Dagskrá:
Verður birt 29. maí í Járngerði, fréttabréf bæjarins og á www.sjoarinnsikati.is
Dagskránni er dreift í öll hús á Suðurnesjum og víðar.
Þjónustuaðilar eins og veitingastaðir og verslanir geta sent inn upplýsingar í dagskrána. Verð 20.000 kr. (lógó innifalið). Upplýsingar sendist á siggeir@grindavik.is fyrir 10. maí nk.
Hægt er að kaupa heilsíðu auglýsingu í dagskrána. Verð kr. 50.000 kr. Auglýsingapantanir sendist á siggeir@grindavik.is.
Skilafrestur á efni og auglýsingum er 10. maí.
Viltu vera með sölubás?
Boðið er upp á aðstöðu fyrir sölubása á hátíðarsvæðinu. Aðstaðan verður í tjaldi. Hægt verður að fara inn í tjaldið kl. 12:00.
Staðsetning: Á lóð Kvikunnar, auðlinda- og menningarhúss Grindavíkur, við Hafnagötu.
Tímasetning:
Laugardaginn 6. júní frá kl. 13:00-17:00
Sunnudaginn 7. júní frá kl. 13:00-17:00
Reglur