Kínverski sendiherrann, Zhang Weidong, kom í stutta heimsókn í Grindavík í gær. Zhang hefur starfað í kínversku utanríkisþjónustunni víða um veröld í yfir 30 ár en hann er tiltölulega nýkominn til starfa á Íslandi og hefur verið að kynna sér land og þjóð. Sendiherrann var ansi fróður um Grindavík. Kvaðst hann hafa nýlega lesið Sölku Völku eftir Halldór Laxness og þótti fróðlegt að fá að sjá Krosshús þar sem Halldór dvaldi meðan hann skrifaði bókina.
Róbert Ragnarsson bæjarstjóri tók á móti sendiherranum ásamt Þorsteini Gunnarssyni sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og Siggeiri F. Ævarssyni upplýsingafulltrúa. Sendiherrann var mjög áhugasamur um að koma á nánari samstarfi milli Grindavíkur og Kína, t.d. einhverskonar vinabæjarsamstarfi. Það er þó ólíku saman að jafna í sveitarstjórnarmálum á Íslandi og í Kína en litlir bæir á kínverskan mælikvarða eru fjölmennari en öll íslenska þjóðin.
Sendiherrann stoppaði stutt við í þetta skiptið þar sem hann var á leið á verklokahátíð CRI en áður en hann fór skiptust hann og Róbert á gjöfum og kvaddi hann okkur með þeim orðum að við værum alltaf velkomnir í te í sendiráðið.