Í 8. bekk gefst nemendum kostur á að taka valáfanga þar sem þau baka fermingartertu og skreyta með sykurmassa. Í ár er þetta í 6. skipið sem áfanginn er kenndur og sér Björk Sverrisdóttir heimilisfræðikennari um það. Nemendur mæta í 3 skipti 4-6 í hóp og þurfa að byrja á því að hanna tertuna, teikna hana upp á blað og ákveða liti. Síðan baka þau botnana og í síðasta tímanum er kremið lagað, sykurmassinn settur á og kakan skreytt.
Í fyrsta skiptið sem þessi áfangi var í boði voru nemendur 4, þeim hefur fjölgað jafnt og þétt og í ár voru það 39 nemendur sem völdu að baka sína eigin fermingartertu. Terturnar voru hver annarri glæsilegri.