Ungir grindvískir íþróttamenn halda áfram að gera það gott en Sylvía Sól Magnúsdóttir, hestakona úr Brimfaxa, gerði sér lítið fyrir og varð í 1. sæti í flokki 17 ára og yngri á opna þrígangsmóti Sóta 11. apríl síðastliðinn. Góður afmælisdagur hjá Sylvíu en þessi efnilegi knapi fagnaði jafnframt 15 ára afmæli sínu þennan sama dag. Við óskum Sylvíu til hamingju með þennan árangur.
Heimasíða Brimafaxa greindi frá þessu:
„Sylvía Sól Magnúsdóttir var í 1. sæti á Sigurfara frá Húsavík í 17 ára og yngri flokk á opna þrígangsmóti Sóta sem haldið var 11. apríl sl.
Sylvía varð einnig á sama móti í 5. sæti í hindrunarstökki á Sigurfara frá Húsavík.
Opna þrígangsmót Sóta var þriggja leikja mótaröð og stigakeppni þar sem keppt var í tveimur aldursflokkum í smala, brokk og hindrunarstökki og svo ein- tví- og þrígang þar sem Sylvía Sól sigraði stigakeppnina þar sem hún var stigahæst í sínum aldursflokk.“
Mynd: Sóti.is