Grindavíkurstelpur mæta Snæfelli í fjórða undanúrslitaleik liðanna í úrslitakeppni kvenna í körfbolta í Röstinni í kvöld kl. 19:15. Grindavík þarf á sigri að halda til að tryggja sér oddaleik. Fari Snæfelli með sigur af hólmi eru Grindavíkurstelpur farnar í sumarfrí.
Grindavíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna í Röstina í kvöld og styðja við bakið á stelpunum.