Lionsklúbbur Grindavíkur mun selja Rauða fjöður í Nettó og Verslunarmiðstöðinni föstudaginn 17. apríl frá kl. 16:00-18:00. Rauð fjöður er landssöfnun Lions sem alla jafna fer fram á fjögurra ára fresti. Afrakstur safnananna hefur alltaf farið til stærri verkefna sem allir landsmenn njóta góðs af. Allt söfnunarfé rennur óskert til þess verkefnis sem verið er að styðja hverju sinni.
Í ár verður safnað fyrir leiðsöguhundum fyrir blinda og sjónskera í samstarfi við Blindrafélagið.
Auk þess að kaupa rauðu fjöðrina má leggja verkefninu lið með því að greiða valgreiðslu í heimabanka eða millifæra upphæð að eigin vali inn á reikning Lions: 0111-26-100230, kt. 640572-0869.
Einnig er hægt að hringja í söfnunarsímanúmer:
Styrkur að fjárhæð 1.000 kr. skuldfærist af símreikningi þegar hringt er í símanúmerið
904 1010.
Styrkur að fjárhæð 3.000 kr. skuldfærist af símreikningi þegar hringt er í símanúmerið
904 1030.
Styrkur að fjárhæð 5.000 kr. skuldfærist af símreikningi þegar hringt er í símanúmerið
904 1050.