Gítarleikarinn landskunni, Björgvin Gíslason, verður með tónleika á Bryggjunni í kvöld. Björgvin var með tónleika ásamt hljómsveit á Bryggjunni fyrir skömmu síðan en í kvöld verður hann einn með gítarinn og mögulega einnig sítarinn. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00, aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.