52. fundur félagsmálanefndar haldinn á sal bæjarstjórnar, fimmtudaginn 9. apríl 2015 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Birgitta H. Ramsay Káradóttir aðalmaður, Anna Sigríður Jónsdóttir formaður, Pétur Rúðrik Guðmundsson aðalmaður, Valgerður Jennýjardóttir aðalmaður, Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Hildigunnur Árnadóttir, félagsráðgjafi.
Fundargerð ritaði: Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Dagskrá:
1. 1503165 - BVS: Samtölublað 2014
Starfsmenn barnaverndarnefndar kynna samtölublað ársins 2014 fyrir nefndinni og greina frá helstu tölfræðiupplýsingum er máli skipta. Athygli vekur hversu fáar tilkynningar bárust frá grunnskóla og leikskólum.
2. 1504015 - Hagstofa Íslands: Félagsþjónustu skýrsla 2014
Árskýrsla félagsþjónustu (Hagstofuskýrsla) vegna ársins 2014 er lögð fram í nefndinni. Í skýrslunni eru tölfræðilegar upplýsingar um daggæslu barna í heimahúsi, félagslega heimaþjónustu og fjárhagsaðstoð. Félagsmálanefnd lýsir áhyggjum sínum yfir því hversu mikill fjöldi ungs fólks var á fjárhagsaðstoð sl. ár, jafnvel í marga mánuði samfellt. Nefndin telur brýnt að ungu fólki á fjárhagsaðstoð í sveitarfélaginu standi til boða úrræði sem efla virkni þeirra og auka valdeflingu þess. Í því sambandi mætti líta til þess að veitt yrði uppbót á framfærslu út frá þátttöku í virkniverkefnum eða beita skilyrðingum þegar það ætti við. Nefndin felur starfsfólki félagsþjónstu að leggja fram tillögur um breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð til að mæta framangreindum sjónarmiðum. Tillögurnar skulu liggja fyrir eigi síðar en 1. september nk.
3. 1503109 - Fjárhagsaðstoð
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00