Aukasýning á árshátíðarleikritum unglingastigs Grunnskóla Grindavíkur verður þriðjudaginn 14. apríl kl. 20:00. Skemmtun sem enginn má missa af.
7.-8. bekkur sýnir leikritið Hin fjögur fræknu og 9.-10. bekkur Hakuna Matata. Leikstjórar eru Bjarni Þórarinn Hallfreðsson og Hanna Dís Gestsdóttir.
Aðgangseyrir er kr. 1.000,- fyrir fullorðna og kr. 500,- fyrir 16 ára og yngri.