Vísiskórinn međ opna ćfingu í Víđihlíđ kl. 15:00 í dag, tónleikar á mánudaginn

  • Fréttir
  • 11. apríl 2015

Hinn fjölþjóðlega og stórskemmtilega Vísiskór verður með opna æfingu í Víðihlíð kl. 15:00 í dag. Íbúar Víðihlíðar eru auðvitað sérstaklega velkomnir en aðrir íbúar bæjarins sem áhuga hafa á söng eru einnig hvattir til að mæta. Kórinn syngur á íslensku, pólsku, serbnesku og tælensku. Kórinn ætlar að spjalla við gesti um lögin, textana og samstarfið í kórnum. Gestir fá að syngja með og boðið verður upp á kaffi og te.

Æfingin er liður í undirbúningi fyrir tónleika kórsins á Cafe Lingua á mánudaginn kl. 17:30.

Café Lingua er
• vettvangur fyrir þá sem vilja efla tungumálakunnáttu sína • staður fyrir orð, spjall og samskipti á hinum ýmsu tungumálum • gátt inn í mismunandi tungumála- og menningarheima

Eitt af markmiðum Café Lingua er að virkja þau tungumál sem hafa ratað til Íslands og auðgað mannlíf og menningu í samfélaginu og um leið að vekja forvitni borgarbúa á heiminum í kringum okkur.

Café Lingua er verkefni Borgarbókasafns Reykjavíkur unnið í samstarfi við Háskóla Íslands, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, Íslenskuþorpið, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO, Menningarmiðstöðina Gerðuberg, Norræna húsið ásamt félögum og einstaklingum.

Hér er tengill á dagskrána.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!