Færeyska söngkonan Guðríð Hansdóttir verður með tónleika á Bryggjunni laugardagskvöldið 11. apríl. Guðríð hefur gefið út þrjár breiðskífur og eina EP plötu sem kom út bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Tónlistin sem hún spilar er poppskotin þjóðlagatónlist, innblásin af sænsku poppi, Jethro Tull og Kate Bush.
Frá árinu 2011 hefur Guðríð búið í Reykjavík og einbeitt sér að því að semja og spila tónlist í samvinnu við sambýlismann sinn, Janus Rasmussen úr Bloodgroup, en saman mynda þau rafdúettinn Byrtu.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.