Miklar vonir bundnar viđ ađ Menntaskóli Grindavíkur taki til starfa í haust
?Ţađ er sannfćring mín ađ stofnun og starfsemi menntaskólans mun verđa Grindavík
mikiđ happa- og framfaraspor," segir Eyjólfur Bragason, verkefnisstjóri Menntaskóla
Grindavíkur sem bćjaryfirvöld hafa barist fyrir frá ţví á síđasta ári en nú bendir
ýmislegt til ţess ađ skólinn sé ađ verđa ađ veruleika. Undir ţetta tekur Jóna
Kristín Ţorvaldsdóttir, bćjarstjóri Grindavíkur, sem segir menntaskólann vera
eitt mesta hagsmunamál Grindvíkinga í dag en stefnt er ađ ţví ađ hefja skólastarf
í haust. Hún bendir einnig á ađ Samband sveitarfélaga á Suđurnesjum styđji áform
um framhaldsskóla í Grindavík og hafi ályktađ um ţađ á 31. ađalfundi sínum, í
grein sem birtist í Víkurfréttum í vikunni.
Mikill einhugur ríkir um máliđ í bćjarstjórn Grindavíkur sem skipađi undirbúningsnefnd
síđastliđiđ vor. Ekki gekk eftir ađ fá fund međ fyrrverandi menntamálaráđherra
en í desember fékkst fundur í ráđuneytinu međ starfsmönnum ţess. En óhćtt er ađ
segja ađ nýr menntamálaráđherra ţjóđarinnar, Katrín Jakobsdóttir, hafi brugđist
hratt og vel viđ ósk Grindvíkinga ţví haldinn var fundur síđasta föstudag, eđa
nokkrum dögum eftir ađ Katrín tók viđ embćtti. Ađ sögn Eyjólfs var hann afar ánćgđur
međ viđbrögđ menntamálaráđherra og fundinn í heild sinni. Ákvörđun lćgi fyrir
af fyrri stjórnvöldum um stofnun nefndar. Nýr menntamálaráđherra sagđi ekki eftir
neinu ađ bíđa ađ koma nefndinni af stađ og ţví eru vonir bundnar viđ ađ Menntaskóli
Grindavíkur hefji starfsemi í haust, eins og áćtlađ var.
Ađ sögn bćjarstjóra hefur Menntaskóli Grindavíkur starfsemi sína í leiguhúsnćđi
til ađ byrja međ ef allt gengur eftir. Ýmsar hugmyndir eru á lofti varđandi byggingu
á framtíđar skólahúsnćđi en nýjasta hugmyndin er ađ reisa mennta- og menningarmiđstöđ
á lóđ Festi en jafnframt ađ endurbyggja ţetta gamla félagsheimili sem Grindvíkingar
tengjast miklum tilfinningaböndum.
Eyjólfur vonast til ţess ađ hćgt verđi ađ vinna hratt og örugglega í málinu af
hálfu ráđuneytsins ţví hér sé ađ mestu um tilfćrslu fjármagns ađ rćđa enda hafa
flestir grindvískir nemendur sótt Fjölbrautaskóla Suđurnesja og myndi fjármagniđ
flytjast međ ţeim til Grindavíkur.
,,Markmiđ menntaskóla í Grindavík er ađ verđa öflugur og framsćkinn framhaldsskóli.
Markmiđ hans er framar öđru ađ efla menntun og bćta búsetuskilyrđi í sveitarfélaginu.
Hann mun byggja á nýjum lögum um framhaldsskóla og bjóđa upp á framhaldsskólapróf,
starfsnámsbrautir og ţriggja ára nám til stúdentsprófs. Sérstađa Grindavíkur verđur
lögđ til grundvallar," sagđi Eyjólfur jafnframt.