Nýr fréttavefur um Grindavík hefur tekið til starfa, grindavik.net. Í fréttatilkynningu frá vefnum segir:
„Grindavik.net er nýr frétta og mannlífsmiðill í Grindavík. Markmið síðunnar er að vera með fréttir og fréttatengt efni úr bæjarfélaginu. Forsvarsmenn síðunnar eru Viktor Scheving Ingvarsson og Páll Þorbjörnsson.
Síðan er ætluð að upplýsa og bæta mannlíf í Grindavík. Enginn frjáls og óháður miðill hefur verið starfræktur í Grindavík í áraraðir og mun grindavik.net mæta þeirri þörf sem er fyrir hendi. Grindavik.net mun starfa að heilindum að því að upplýsa bæjarbúa um málefni Grindavíkur og vera málgagn Grindvíkinga, segir í frétt frá grindavik.net.“
Við hér hjá Grindavík.is óskum þeim Viktori og Páli til hamingju með nýja vefinn og vonum að hann verði góð og uppbyggileg viðbót í bæjarmálaumræðuna í Grindavík.